Lög
1.gr
Félagið heitir: Félag um leiklist í skólastarfi FLÍSS. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
Félagar geta orðið þeir sem uppfylla einhver eftirfarandi skilyrði:
a) Hafa lokið fullgildu kennaraprófi með sérþekkingu í leiklist
b) Hafa lokið kennsluréttindanámi á sviði leiklistar frá LHÍ.
c) Hafa lokið leiklistarnámi með fullgild kennsluréttindi.
d) Hafa sambærileg próf eða reynslu að mati stjórnar félagsins.
Aukaaðilar að félaginu geta allir aðrir orðið sem áhuga hafa á eflingu leiklistar í skólastarfi. Þeir hafa rétt til að taka þátt í starfi félagsins en hafa ekki kjörgengi eða atkvæðisrétt.
2.gr
Tilgangur félagsins er:
Að vinna að því að leiklistarkennsla og leiklist í námi eflist á öllum skólastigum í íslensku skólakerfi.
• Efla og fylgja eftir kennslu leiklistar sem sjálfstæðrar listgreinar í íslensku skólakerfi og gæta þess að samfella sé á milli skólastiga.
• Stuðla að útbreiðslu leiklistar í námi í hinum ýmsu kennslugreinum skólanna.
• Efla kennslu leiklistar og leiklistartengdra faga í framhaldsskólum. Stuðla að námsefnisgerð fyrir leiklistarkennslu og leiklist í námi. Stuðla að eflingu menntunar á sviði leiklistarkennslu.
• Að vægi leiklistar í námi aukist í kennaramenntun.
• Að starfandi kennarar eigi greiðan aðgang að menntun á sviði leiklistarkennslu.
• Að leiklistarmenntuðu fólki gefist áfram kostur á að útskrifast sem leiklistarkennarar frá LHÍ. Efla umræðu í samfélaginu öllu um mikilvægi leiklistar í námi fyrir börn og unglinga.
• Efla umræðu í skólakerfinu um leiklist og notkun leiklistar í námi. • Vekja kennara til umhugsunar um þýðingu þess að nota aðferðir leiklistar í skólastarfi.
• Vekja ráðamenn og þá sem stýra atvinnulífinu til umhugsunar um mikilvægi leiklistar í skólastarfi.
• Skrifa greinar um leiklist í skólum í blöð og tímarit og efla umfjöllun um hana í öllum fjölmiðlum. Hvetja til rannsókna á áhrifum leiklistar á námsgetu og lífsleikni. Koma á samskiptum við leiklistarkennara og samtök þeirra í öðrum löndum.
3. gr.
Stjórn
Stjórn félagsins er kosin á aðalfundi og hana skipa 5-7 einstaklingar. Formaður er kosinn í sérstakri kosningu á aðalfundi, en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum.
Á aðalfundi eru ennfremur kosnir tveir skoðunarmenn reikninga. Starfstímabil stjórnar er eitt ár. Við endurkjör skulu sitja a.m.k. tveir úr fráfarandi stjórn.
4. gr.
Fundir félagsins.
Aðalfund skal halda að vori og skal hann boðaður með a.m.k. fjögurra vikna fyrirvara.Í fundarboði skal tilgreina fundarstað, fundartíma og dagskrá fundarins.
Fundarboði skal fylgja fundargerð síðasta aðalfundar og reikningar félagsins, svo og framkomnar
lagabreytingatillögur. Tillögur um lagabreytingar skulu sendast stjórninni í síðasta lagi 6 vikum fyrir aðalfund.
Í fundarboði fyrir aðalfund skal óskað eftir framboðum til stjórnar og skal framboð
liggja fyrir á aðalfundi.
Félagsfundir skulu haldnir hvenær sem stjórnin telur ástæðu til eða samkvæmt ósk 1/3 hluta félagsmanna.
Formaður gerir tillögu um fundarstjóra fyrir hvern fund og þarf hann samþykki fundarmanna.
Á aðalfundi þarf 2/3 hluta atkvæða til að samþykkja lagabreytingar en í öðrum málum nægir meirihluti atkvæða.
Félagsgjöld skulu ákveðin á aðalfundi.
Lagt var til að leggja til eftirfarandi breytingar í upphafi greinarinnar (breytingar eru feitletraðar):
5. gr.
Aðalfundur.
Aðalfundur hefur á hendi æðsta vald félagsins.Á aðalfundi skulu tekin fyrir eftirfarandi mál:
1. Skýrsla formanns
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til afgreiðslu.
3. Skýrslur nefnda.
4. Lagabreytingar.
5. Kosningar:
a) Stjórnarkosningar: Stjórn félagsins skipa fimm einstaklingar: formaður, ritari, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur.
Formaður skal kosinn til tveggja ára í senn.
Ritari, gjaldkeri og meðstjórnendur skulu kosnir til tveggja ára í senn. Enginn má vera lengur en fjögur ár í röð í sama stjórnarsæti.
b) Kosning skoðunarmanna reikninga. Skoðunarmenn skulu vera tveir og einn til vara. Einnig skal kosið tvo varamenn í stjórn sem þó hafa ekki atkvæðisrétt á stjórnarfundum
c) Kosning í nefndir:
Kosið skal í nefndir eftir verkefnum hverju sinni. Heimilt er að kjósa í nefndir á almennum félagsfundum. Stjórn félagsins hefur sömuleiðis heimild til að skipa í nefndir ef þurfa þykir
d) Sé ekki um mótframboð til embætta að ræða telst sjálfkjörið í þau.
6. Ákvörðun um félagsgjald.
7. Önnur mál
6.gr.
Fundargerðir
Rita skal fundargerðir félagsfunda. Stjórnin skal halda sérstaka fundargerðir um stjórnarfundi. Útdráttur úr fundargerð aðalfundar skal sendur til félagsmanna.
7.gr.
Bókhald
Reikningsár félagsins miðast við almanaksár. Reikningar félagsins skulu yfirfarnir af skoðunarmönnum reikninga.
8. gr.
Félagið verður því aðeins lagt niður að tillaga þess efnis sé samþykkt á aðalfundi eftir sömu reglum og tilgreindar eru í 4. grein þessara laga. Á þeim fundi verður eignum félagsins ráðstafað og gerðar aðrar nauðsynlegar ráðstafanir vegna félagsslitanna. Eignir félagsins munu renna til Félags Íslenskra leikara /Kennarasambands Íslands.
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins 8. nóvember 2005 og öðlast þegar gildi. Samþykkt af stjórn Ólafur Guðmundsson formaður Ása Helga Ragnarsdóttir gjaldkeri Guðný María Jónsdóttir ritari Guðbjörg Árnadóttir meðstjórnandi Ásgeir Sigurvaldason meðstjórnandi.
Lög þessi tóku breytingum á aðalfundi FLÍSS sem haldin var 12. mars 2014.