Könnun Flíss

Um daginn gerði formaður FLÍSS smá könnun hjá félagsmönnum um m.a. hverjar væntingar þeirra væru til félagsins og hvað þeir vildu að stjórnin einbeitti sér að. Hér má sjá svör félagsmannaKönnun FLISS, svör.

Langar þig ekki á dramaráðstefnu?

Langar þig ekki á dramaráðstefnu?

Langar þig ekki á dramaráðstefnu? Langa þig ekki til Danmerkur? Langar
þig ekki til að vera með skemmtilegu fólki? Þá kemur þú með okkur á
Drama Boreale ráðstefnuna sem haldin er í Silkiborg 3-7 ágúst. Sjá
vefsíðu ráðstefnunnar, gúggla dramaboreale 2015. Það er eitt pláss laust
á hótelinu sem hópurinn frá Íslandi verður á. Ertu til? Hafðu þá samband
á netfangið: asahragn@hi.is
Ferðafélagar á Drama Boreale

SKRÁNING HAFIN Í OPIN NÁMSKEIÐ LISTKENNSLUDEILDAR Á HAUSTÖNN

SKRÁNING HAFIN Í OPIN NÁMSKEIÐ LISTKENNSLUDEILDAR Á HAUSTÖNN

Opnað hefur verið fyrir skráningu í opin námskeið listkennsludeildar á haustönn 2015. Boðið er uppá fjölbreytt úrval námskeiða á meistarstigi sem eru opin öllum sem eru með grunnháskólagráðu í listum, hönnun eða kennslu.

Starfandi listgreinakennarar eru sérstaklega hvattir til að sækja námskeiðin sem henta vel til símenntunar listgreinakennara. Fjölmörg ný námskeið eru í boði á næstu haustönn og hægt er að taka námskeið með eða án eininga.

Námskeið sem í boði verða haustið 2015

  • Skuggaleikhús, 2 einingar. NÝTT.
  • Leiklist fyrir kennara ungra barna, 2 einingar. NÝTT.
  • Tónlist fyrir kennara ungra barna, 2 einingar. NÝTT.
  • Bókagerð, 2 einingar.
  • Skapandi skrif í skólastofunni, 4 einingar.
  • Rödd, spuni, tjáning, 2 einingar.
  • Styrkumsóknir: skapandi greinar, 2 einingar. NÝTT.
  • Rytmaspuni og kroppaklapp, 2 einingar.
  • Verkefnastjórnun, 6 einingar.
  • Listkennsla nemenda með sérþarfir, 6 einingar.
  • Námsefnisgerð, 4 einingar.
  • Fræðsla fullorðinna, 6 einingar.
  • Listir og sjálfbærni (fjarnámskeið, 2 lotur), 6 einingar.

Kennarar eru allir leiðandi á sínu sviði og koma bæði úr röðum kennara við Listaháskóla Íslands og af vettvangi.

Nánari upplýsingar um námskeiðin eru hér.

Umsóknareyðublað er að finna hér.

Upplýsingar um verð námskeiða er hér.

Nánari upplýsingar veitir Gunndís Ýr Finnbogadóttir

List- og verkgreinanámskeið á vegum kennaradeildar HÍ

List- og verkgreinanámskeið á vegum kennaradeildar HÍ

Á haustönn  2015 verða í boði fjögur 5 eininga framhaldsnámskeið við kennaradeild Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.

Námskeiðin eru ætluð  kennurum með grunn- eða framhaldsskólaréttindi, nemendum við Listaháskóla Íslands, Myndlistaskólann í Reykjavík og Hönnunar- og handverksskóla Tækniskólans sem og fagfélögum í textíl, myndlist og hönnun og smíði.

Meiri upplýsingar hér.

Pin It on Pinterest